Píratar ganga sjálfir plankann gagnvart þjóðinni

mbl.is/Kristinn Magnússon

Innherji er skoðanadálkur ViðskiptaMoggans.

Píratar hafa lagt fram frumvarp um bann við nýskráningu bensín- og dísilbíla sem á að taka gildi 1. janúar 2026, eftir rúmt ár. Ástæðan, að þeirra mati, er markmið ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og hlutdeild vegasamgangna í útblæstri.

Það er hins vegar þetta með markaðinn og stjórnmálin. Það eru sterk öfl sem stýra þar, önnur en boð og bönn.

Loftslagsmarkmið ríkisstjórnarinnar virðast ekki vera í takti við það sem er að gerast í Evrópu, sem þó er leiðandi á þessum sviðum. Við erum þegar komin lengra en flest lönd sem við miðum okkur við í loftslagsmálum. Það kemur einungis niður á samkeppnisfærni og lífsskilyrðum ef við ætlum að ganga lengra. Þetta þarf því ný ríkisstjórn að endurskoða.

Til viðbótar er alls ekki ljóst að rafbílar séu sú lausn sem markaðurinn muni reiða sig á til framtíðar. Mögulega eru það mun sparneytnari bensín- og dísilvélar. Markaðurinn þarf að móta það sjálfur en ekki stjórnmálamenn. Með útspili sínu hafa Píratar farið sömu leið og forysta VG síðustu daga, málað sig út í horn og sýnt að þeim er ekki treystandi fyrir efnahagslegri framtíð þjóðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK