Gunnar Þór: „Yfirtökutilboðið einungis fyrsta skrefið“

Þann 20. september síðastliðinn lagði Langisjór fram yfirtökutilboð í Eik …
Þann 20. september síðastliðinn lagði Langisjór fram yfirtökutilboð í Eik fasteignafélag. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

„Við hefðum gjarnan viljað eignast fleiri bréf í Eik í aðdraganda yfirtökutilboðsins og í tilboðsferlinu sjálfu. Yfirtökutilboðið var hins vegar einungis fyrsta skrefið í vegferð Langasjávar að auka áhrif sín og eignarhald í Eik," er haft eftir Gunnari Þór Gíslasyni framkvæmdastjóra Langasjávar í tilkynningu til Kauphallarinnar sem birtist í gærkvöldi.

Í tilkynningunni kemur fram að samþykki hafi borist fyrir alls 247.190 hlutum í Eik. Samkeppniseftirlitið tilkynnti Langasjó þann 14. október 2024 að ekki væri um tilkynningarskyldan samruna að ræða. Greiðsla til þeirra sem samþykktu tilboðið og afhending hluta til tilboðsgjafa fer fram í síðasta lagi 25. október 2024.

Þann 20. september 2024 gerði Langisjór ehf. hluthöfum Eikar yfirtökutilboð, með þeim skilmálum og skilyrðum sem fram komu í opinberu tilboðsyfirliti dagsettu sama dag. Gildistími tilboðsins rann út í gær.

„Það lá lengi fyrir að Langisjór og samstarfsaðilar væru nálægt því að fara yfir 30% eignarhlut í Eik og þyrftu þannig að gera öðrum hluthöfum yfirtökutilboð. Nú er Langasjó frjálst að eignast meirihluta í félaginu án þess að endurtaka það ferli. Hvenær og á hvern hátt Langisjór eykur við hlut sinn í Eik mun fara eftir markaðsaðstæðum og öðrum fjárfestingartækifærum sem bjóðast," er haft eftir Gunnari Þór.

Markaðsaðstæður ráða för

Á þeim degi sem tilboðið var sett fram fór Langisjór og samstarfsaðilar með 1.106.281.964 hluti í Eik sem samsvarar 32,31% af hlutafé félagsins. Eftir tilboðið fer Langisjór og samstarfsaðilar með 1.106.529.154 hluti í Eik sem samsvarar 32,32% af hlutafé félagsins.

„Gengi Eikar hafði sveiflast í kringum 10 krónur á hlut lengstan hluta þessa árs þegar það tók nokkurn kipp í litlum viðskiptum strax eftir birtingu hálfsársuppgjörs félagsins þann 15. ágúst," segir Gunnar Þór í tilkynningunni.

Góður samhljómur með áhersluatriðum

Hann segir það hafa staðið til að Langisjór myndi bæta við sig eignarhlut með því að kaupa hlutabréf í utanþingsviðskiptum helgina eftir birtingu árshlutauppgjörs. Það hafi ekki gengið eftir og síðan hafi gengi félagsins hækkað enn frekar eftir að yfirtökutilboð var lagt fram þannig að markaðsverð á hlutabréfum Eikar hafi verið orðið nokkru hærra en tilboðsverð þegar yfir lauk.

„Á tilboðstímanum höfum við haft tækifæri til að eiga marga uppbyggilega fundi með stærstu hluthöfum Eikar. Þann vettvang höfum við nýtt til að ræða sýn okkar á uppbyggingu, skipulag og framtíðarhorfur félagsins við meðeigendur. Við finnum góðan samhljóm hjá þeim við þau áhersluatriði okkar að hagræða í eignasafni Eikar, auka arðgreiðslur og skuldsetningu félagsins. Þessi samstilling í hluthafahópi félagsins gefur okkur tækifæri til að horfa björtum augum fram á veginn þar sem hagsmunir hluthafa fara saman við vegferð Eikar,“ segir Gunnar Þór í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK