Íslendingar hafa eytt ríflega 27 milljörðum króna í erlendar netverslanir það sem af er ári. Þetta er veruleg aukning frá 19 milljörðum á sama tímabili í fyrra. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar (RSV).
Þar segir að haldi þessi þróun áfram megi gera ráð fyrir að heildarverslun Íslendinga í erlendum netverslunum nái hátt í 44 milljörðum króna á þessu ári. Til að setja tölurnar í samhengi nam heildarkortavelta erlendra ferðamanna á Íslandi í júlí tæpum 48 milljörðum króna, samkvæmt Seðlabanka Íslands.
Í september nam netverslun Íslendinga í erlendum netverslunum 4,34 milljörðum króna, sem er 14% aukning frá ágúst sl. sem einnig var met mánuður. Miðað við september í fyrra hefur erlend netverslun aukist um 92%.
Í síðasta mánuði birti RSV frétt um aukna netverslun frá Eistlandi, þar sem mánaðarlegt meðaltal hafði farið úr 5,9 milljónum króna í 850 milljónir króna.
Sú aukning hefur nú vaxið enn meira, þar sem netverslun frá Eistlandi rúmum 2 milljörðum króna í september, eða yfir 45% af heildarnetverslun Íslendinga erlendis þann mánuðinn.
Fram kemur að RSV telji að hluta af aukningunni megi rekja til opnunar dreifingamiðstöðva kínverskra stórfyrirtækja í Eistlandi. Til að mynda eru að berast sendingar af Ali Express og Temu frá Eistlandi.