Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi og Óttar Örn Sigurbergsson framkvæmdastjóri Elko opnuðu með viðhöfn dyr nýrrar og endurbættrar verslunar Elko í Lindum í Kópavogi klukkan ellefu í morgun. Verslunin hefur verið lokuð í tvær vikur, eða frá 17. október síðastliðnum, vegna framkvæmda við gagngerar endurbætur. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.
„Við teljum kraftaverki líkast að hafa á svo skömmum tíma komið að jafnviðamiklum breytingum. Fyrir það viljum við þakka öllum sem lögðu hönd á plóg,“ segir Óttar Örn.
„Að okkar mati er þetta nú ein glæsilegasta verslun landsins.“
Skjávæðing og bætt upplifun
Í uppfærðri verslun mæta gestum nýjar innréttingar og nýtt útlit, þar sem skjáir eru nýttir til upplýsingagjafar. Þá hefur verið útbúinn nýr og aðgengilegri inngangur í verslunina með gleranddyri þar sem áfram verður að finna endurvinnsluskáp og aðstöðu til að pakka inn gjöfum.
Til að bæta flæði í versluninni og um leið upplifun viðskiptavina hefur þjónustuborði jafnframt verið komið fyrir á kassasvæði. Þar hefur afgreiðsluröð líka verið alveg skipt út fyrir númerakerfi, sem einnig auðveldar viðskiptavinum að fá þjónustu á réttum stað.
Staðsetningarkerfi virkjað
Í Lindum hefur ELKO jafnframt opnað nýtt fyrirtækjaver þar sem tekið er á móti fulltrúum fyrirtækja í söluráðgjöf.
„Breytingarnar eru miklar og skila sér í nútímalegri upplifun með lifandi myndböndum víðsvegar í versluninni. Svo má nefna að stór leikjaskjár í leikjadeildinni gerir okkur kleift að halda í framtíðinni tölvuleikjamót á staðnum og svo hafa verið sett upp nokkur fullbúin eldhús búin nýjustu tækjum til að sýna þær í raun umhverfi og auðvelda fólki valið,“ segir Óttar Örn.
Nýtt staðsetningarkerfi vara er líka virkjað í uppfærðri verslun í ELKO til að auðvelda fólki að finna vörur í hillu með einföldum hætti. Með því að smella á: „Staðsetja vöru í verslun“ á vefsíðu ELKO er nú hægt að sjá nákvæma staðsetningu á korti innan verslunarinnar og láta hillumerkingu blikka til að leiða mann á réttan stað.
Í tilefni endurbótanna eru opnunartilboð á fjölmörgum vörum í ELKO í Lindum frá deginum í dag til sunnudagsins 3. nóvember.