Controlant tryggir sér 35 milljónir dala

Gísli Herjólfsson, forstjóri Controlant.
Gísli Herjólfsson, forstjóri Controlant. mbl.is/Kristinn Magnússon

Controlant hefur lokið 35 milljón Bandaríkjadala fjármögnun, sem samsvarar um 4,8 milljörðum íslenskra króna, sem ætlað er að styðja við framtíðaráform félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Fjármögnunin samanstendur af 25 milljónum dala í formi nýs hlutafjár auk 10 milljón dala lánsfjármögnunar.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka var ráðgjafi félagsins í fjármögnunarferlinu en BBA/Fjeldco veitti félaginu lögfræðilega ráðgjöf.

Frekari markaðssókn

Fram kemur að fjármögnunin efli Controlant í frekari markaðssókn og stefnumótandi vöruþróun, þar sem markmiðið sé áfram að tryggja öryggi sjúklinga og draga úr sóun með rauntímavöktunarlausnum.

Controlant þjónustar nú þegar nokkra af stærstu lyfjaframleiðendum og flutningaraðilum heims.

Fjármögnunin er í samræmi við samþykkt hluthafafundar í síðasta mánuði þar sem stjórn Controlant fékk heimild til útgáfu nýrra hluta til að styðja við framtíðaráform félagsins.

„Við höfum með stuðningi hluthafa fjárfest ríkulega í grunnstoðum félagsins og skapað Controlant samkeppnisforskot á spennandi og ört vaxandi markaði. Lyfja- og flutningafyrirtæki hafa einsett sér að auka sjálfvirkni í aðfangakeðju lyfja, þar sem innleiðing á stafrænni tækni og rauntímavöktun er óumflýjanleg. Sú stefna lyfjarisanna er óbreytt, og þótt kaup- og innleiðingarferli hafi tafist erum við bjartsýn á framhaldið. Þessi fjármögnunaráfangi og stuðningur hluthafa er mikilvæg varða á leiðinni að sjálfbærum vexti. Við höldum ótrauð áfram, enda í einstakri stöðu til að umbylta aðfangakeðju lyfja á heimsvísu og skapa verðmæti fyrir hagaðila Controlant,“ er haft eftir Søren Skou, stjórnarformanni Controlant.

Framtíðar áform um sjálfbæran vöxt

Í tilkynningunni segir að Controlant vinni markvisst að því að laga starfsemina að markaðsaðstæðum og stuðla að bættum rekstri félagsins. Auk öflugs markaðs- og sölustarfs hafi félagið ráðist í hagræðingaraðgerðir til að auka skilvirkni og styðja við framtíðaráform um sjálfbæran vöxt.

Þá sé framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini forgangsmál félagsins. Controlant muni halda áfram að þróa lausnir sem miða að því umbreyta aðfangakeðju lyfja, útrýma sóun, og gera viðskiptavinum kleift að mæta áskorunum í takt við öra þróun lyfjageirans.

Nýsköpun til móts við framtíðaráskoranir

Controlant þróar og selur hug- og vélbúnað, auk þess að þjónusta viðskiptavini með ýmsum hætti. Félagið leggur áherslu á áframhaldandi viðskiptaþróun og nýsköpun, svo lyfjaframleiðendur geti betur mætt áskorunum framtíðar.

Í tilkynningunni segir að Saga Card, sem þróað er Controlant í samvinnu við hóp öflugra samstarfsaðila, sé tímamótalausn sem muni auka sýnileika í aðfangakeðju lyfja svo um munar. Saga Card sé háþróað vöktunartæki á stærð við kreditkort og þegar það tengist Aurora skýjalausn Controlant, geri það lyfjafyrirtækjum kleift að vakta lyf niður á mun smærri einingar, allt niður á einstaka sendingar og vörur, og öðlast rauntíma innsýn í birgðastöðu eftir landi, landshlutum, borgum og bæjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK