Hrafnista innleiðir Lyfjavaka

Gunnur Helgadóttir, María Hrund Stefánsdóttir, Oddgeir Reynisson, Arna Harðardóttir, María …
Gunnur Helgadóttir, María Hrund Stefánsdóttir, Oddgeir Reynisson, Arna Harðardóttir, María Fjóla Harðardóttir, Magnús Már Steinþórsson, Harpa Hrund Albertsdóttir og Emil Gunnar Einarsson. Ljósmynd/Birgir Ísleifur

Hrafnista hefur undirritað samstarfssamning við heilbrigðistæknifyrirtækið Helix um innleiðingu á hugbúnaðarlausninni Lyfjavaka fyrir hjúkrunarheimilin sín.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að innleiðing Lyfjavaka sé hluti af stafrænni vegferð Hrafnistu og mun lausnin samvæmt tilkynningunni auka öryggi í umsýslu lyfja, tryggja gæði lyfjaskráningar og veita betri yfirsýn við lyfjatiltekt.

Lyfjavaki er rafrænt lyfjaskráningarkerfi sem gerir hjúkrunarfræðingum kleift að halda utan um skráningar á lyfjatiltekt og lyfjagjöfum íbúa. Jafnframt er notast við smáforrit til að staðfesta lyfjagjafir. Með notkun Lyfjavaka er tryggt að rekjanleiki lyfjagjafa sé í samræmi við þær kröfur sem gilda um slíka skráningu. 

Betri yfirsýn og aukið öryggi

„Það er ánægjulegt að fá Hrafnistu inn í hóp hjúkrunarheimila og heilbrigðisstofnana sem nýta sér Lyfjavaka. Lausnin okkar stuðlar að betri yfirsýn heilbrigðisstarfsfólk og tryggir nákvæmari og öruggari lyfjagjöf. Það hvetur okkur hjá Helix áfram í þeirri vegferð að bjóða tæknilausnir fyrir hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir,“ segir Magnús Már Steinþórsson, vörustjóri hjá Helix í tilkynningunni. 

Gunnur Helgadóttir, Arna Harðardóttir og María Fjóla Harðardóttir undirrita samninginn.
Gunnur Helgadóttir, Arna Harðardóttir og María Fjóla Harðardóttir undirrita samninginn.

Gunnur Helgadóttir framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs hjá Hrafnistu segir í tilkynningunni að innleiðingin muni hafa jákvæð áhrif á starfsemi heimilanna. „Lyfjavaki á eftir að auka yfirsýn fagaðila á lyfjagjöfum og þar með tryggja betur gæði og öryggi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK