Rekstrarhagnaður (EBIT) á þriðja ársfjórðungi hjá fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækinu Sýn var 363 milljónir króna, samanborið við 590 milljónir króna á fyrra ári. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Hagnaður eftir skatta á fjórðungnum nam 17 milljónum króna samanborið við 321 milljón króna hagnað á sama tímabili árið 2023. Í tilkynningu kemur fram að munurinn skýrist helst af minni tekjum af IoT þjónustu, hærra kostnaðarverði og hærri afskriftum sýningarrétta sem voru lægri á sama tíma í fyrra vegna endursamninga við birgja.
Þann 1.október var undirritaður kaupsamningur við Hexatronic um hluta af starfsemi Endor., dótturfyrirtæki Sýnar. Hluti kaupverðsins var greiddur í október. Einnig var hlutur félagsins í Parka Lausnum seldur á tímabilinu.
Skipurit Sýnar tók breytingum 1. nóvember. Tveir nýir stjórnendur taka sæti í framkvæmdastjórn en unnið er að ráðningu í stöðu framkvæmdastjóra Miðla og efnisveitna.
Uppgjör þriðja ársfjórðungs er í samræmi við forsendur afkomuspár fyrir árið 2024 sem félagið birti 2. júlí síðastliðinn og gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT), án nokkurra leiðréttinga vegna einskiptisliða, verði á bilinu 900-1.100 milljónir króna
Félagið stefnir á að skila 6-800 milljón króna í rekstrarbata á ársgrundvelli á síðari hluta ársins 2024. Rekstrarbatinn ætti að skila félaginu 1.500-1.700 milljónum króna í rekstrarhagnað (EBIT) á árinu 2025 án tillits til annara verkefna sem koma inn á því ári.
Markaðsdagur Sýnar mun fara fram klukkan 12:00 í dag en þar verður farið nánar yfir horfur í rekstri og fyrsta áfangann í umbreytingarferli félagsins.
Haft er eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted forstjóra Sýnar í fréttatilkynningu að rekstrarniðurstaða félagsins sé lituð af of mikilli yfirbyggingu.
„Rekstrarniðurstaða félagsins hefur verið lituð af of mikilli yfirbyggingu þar sem sameiningar fyrri ára hafa ekki verið að fullu innleiddar inn í rekstur félagsins. Nýir stjórnendur komu inn á þessu ári og höfum við notað tímann vel í að kynnast félaginu en ekki síður tekið metnaðarfullar ákvarðanir til framtíðar. Ég er þess fullviss um að ný áhersla okkar og átak í djúpri samþættingu og einföldun innan Sýnar muni leggja grunninn að sjálfbærum langtíma hagnaði og vexti. Við höfum unnið markvisst að mótun nýrrar stefnu Sýnar síðustu mánuði þar sem helstu drifkraftar eru skilvirkni, vöxtur og samvinna og lítum björtum augum til framtíðar," er haft eftir Herdísi í tilkynningu.