Spá 4,5% verðbólgu í nóvember

Verðbólgan er á niðurleið miðað við spá bankans.
Verðbólgan er á niðurleið miðað við spá bankans. mbl.is/Karítas

Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í nóvember og að verðbólga hjaðni úr 5,1% í 4,5%.

Í tilkynningu frá greininardeildinni segir að flugfargjöld til útlanda og reiknuð húsaleiga koma til lækkunar að þessu sinni, en húsnæði án reiknaðrar húsaleigu til hækkunar. Flestir aðrir undirliðir munu hafa lítil áhrif.

„Við eigum von á áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar á næsta ári,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK