Adani ákærður fyrir mútur og svik

Indverska Adani-samsteypan á undir högg að sækja um þessar mundir.
Indverska Adani-samsteypan á undir högg að sækja um þessar mundir. AFP

Indverski auðkýfingurinn Gautam Adani hefur verið ákærður af bandarískum saksóknara fyrir að eiga þátt í 265 milljóna dala (um 36,7 milljarða ISK) meintu samsæri um að múta indverskum embættismönnum

Reuters-fréttaveitan hefur eftir bandaríska ákæruvaldinu að mörg svik hafi verið framin af Adani sem hafi haft áhrif á bandaríska fjárfesta og skráð fyrirtæki í kauphöllinni vestanhafs.

Ákærurnar á hendur Adani, sem er einn ríkasti maður heims, hafa valdið því að hlutabréf og skuldabréf í Adani-samsteypunni hríðféllu í gær. Þar sem samsteypan er miðpunktur ásakana Bandaríkjamanna hætti hún við 600 milljóna dala (um 83,3 milljarða ISK) sölu skuldabréfa í Bandaríkjunum.

Handtökuskipanir hafa verið gefnar út í Bandaríkjunum á hendur Gautam Adani og frænda hans, Sagar Adani, og hyggjast saksóknarar vestra afhenda lögregluembættum annarra ríkja gögn sem sýni fram á sekt þeirra.

Adani-samsteypan hafnar öllum ásökunum og segir í yfirlýsingu að þær séu rangar og tilhæfulausar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK