Merkjaklöpp á Akranesi hefur ráðið Ellert Jón Björnsson í stöðu fjármálastjóra fyrirtækisins og hefur hann þegar hafið störf.
Þetta segir í tilkynningu.
Fram kemur að Ellert sé borinn og barnfæddur Skagamaður og lauk meistaragráðu í fjármálum frá Viðskiptaháskólanum í Árósum í Danmörku árið 2012. Ellert hefur látið sig samfélagsmál varða ásamt því að taka þátt í félagsstörfum og hann situr bæði í stjórn Fjölbrautarskóla Vesturlands og knattspyrnudeildar ÍA sem hann lék reyndar með á yngri árum og varð m.a. Íslandsmeistari árið 2001.
„Ég er mjög ánægður með að vera genginn til liðs við Merkjaklöpp og hlakka til að nýta mína þekkingu í þeim verkefnum sem fyrirtækið er nú þegar með í gangi og hefur á prjónunum. Það má segja að ég sé extra peppaður þar sem félagið er að vinna að mjög framsækinni uppbyggingu í mínum gamla heimabæ og það eru virkilega spennandi tímar fram undan,“ er haft eftir Ellert í tilkynningunni.
Í tilkynningunni segir að Merkjaklöpp sé framsækið fyrirtæki staðsett á Akranesi sem hafi það að sérstöku markmiði að láta til sín taka í skipulagsmálum og mannvirkjagerð á Íslandi.
Merkjaklöpp á og rekur ýmis dótturfyrirtæki sín í þágu settra markmiða sinna, má þar nefna fyrirtækin Folium fasteignafélag og Keili en saman sérhæfa fyrirtækin sig í framkvæmdaráðgjöf og stýriverktöku við mannvirkjagerð á Íslandi. Fyrirtækin þjónusta þá einnig önnur fyrirtæki og sveitarfélög við þróun fasteignaverkefna, fjármögnun, markaðssetningu, skipulagsmál o.fl.
„Það er okkur mikill fengur að fá Ellert til liðs við okkur en hann kemur hér inn til okkar á mikilvægum tíma og mun hann gegna lykilhlutverki í áframhaldandi vexti Merkjaklappar-samstæðunnar. Ellert kemur til með að stýra fjármálasviði Merkjaklappar, en þar með stýrir hann þá einnig fjármálasviði dótturfélaga okkar, Folium fasteignafélags og Keilis-félaganna. Ellert er mörgum kunnur þar sem hann hefur látið vel til sín taka í bransanum og fjármálastýringu fyrirtækja en við horfum auðvitað sérstaklega líka til þess að Ellert er alvöru Skagamaður með farsælan feril úr fótboltanum undir belti á Skipaskaga. Hans verðmæta þekking og reynsla, jafnt innan vallar sem utan, kemur til með að nýtast okkur vel við að ná okkar settu markmiðum og við hlökkum mikið til að vinna með Ellerti,“ er haft eftir Guðmundi Sveini Einarssyni, stjórnarformanni Merkjaklappar.