Vextir lækki um 175-200 punkta

Stýrivextir Nefndin er afdráttarlaus um áhrif peningastefnunnar.
Stýrivextir Nefndin er afdráttarlaus um áhrif peningastefnunnar. Morgunblaðið/Eggert

Verðbólguspá Seðlabankans er orðin í það bjartsýnasta en engu að síður er nær öruggt að verðbólga lækki nægilega til að styðja við frekari vaxtalækkanir á næstu fundum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í greiningu sem Hafsteinn Hauksson aðalhagfræðingur Kviku sendi frá sér í tilefni vaxtalækkunar Seðlabankans.

Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti um 50 punkta á fundi sínum á miðvikudag.

Kvika spáir því að stýrivextir verði lækkaðir um 175-200 punkta á næsta ári, sem samsvarar 25-50 punkta lækkun á hverjum fundi nefndarinnar árið 2025. Næsta vaxtaákvörðun verður tilkynnt á fundi peningastefnunefndar 5. febrúar næstkomandi og er því ljóst að það er nokkuð langt í næsta fund.

„Þótt verðbólgan stefni í rétta átt er þó enn þörf á þéttu raunaðhaldi á meðan verðbólga er jafnfjarri markmiði og raun ber vitni. Athygli vekur að nefndin líti á mikinn uppsafnaðan sparnað heimilanna sem einn helsta áhættuþáttinn fyrir verðbólguhorfurnar,“ segir í greiningu Kviku og er þá vísað til þess að heimilin geti leitað í frekari einkaneyslu samhliða því sem innlánsvextir lækki.

„Við höfum ítrekað bent á að mikill vöxtur innlána frá upphafi árs 2023 gæti takmarkað svigrúm nefndarinnar til vaxtalækkana þegar fram líða stundir og er að okkar mati til marks um hækkun jafnvægisvaxta hagkerfisins,“ segir í greiningunni.

Kvika gerir ráð fyrir skarpri lækkun verðbólgunnar næstu mánuði og nefndi sérstaklega í greiningu sinni að bankinn hefði búist við einhverjum varnöglum frá nefndinni í tengslum við óróa á vinnumarkaði eða þá vegna 15 milljarða samdráttar í frumjöfnuði fjárlaga næsta árs í framlögðu frumvarpi. Hvorki yfirlýsing nefndarinnar né svör seðlabankastjóra bendi til að nefndin hafi áhyggjur af þeim atriðum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK