Advania tekur yfir Salesforce viðskipti Data Dwell

Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, Ólafur Helgi Þorkelsson, …
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, Ólafur Helgi Þorkelsson, forstjóri Data Dwell og Óli Þór Gunnarsson, deildarstjóri hjá Advania. Ljósmynd/Aðsend

Advania og Data Dwell ehf. hafa komist að samkomulagi um kaup Advania á öllum Salesforce viðskiptum Data Dwell.

Í tilkynningu frá Advania segir að með með kaupunum taki Advania yfir allar skuldbindingar gagnvart þeim viðskiptavinum sem þetta snertir.

„Við fögnum því að geta stutt við stafræna vegferð fyrirtækja. Advania á að baki ótal vel heppnuð verkefni í Salesforce með okkar frábæru viðskiptavinum og hefur Salesforce verið nýtt af mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins um árabil. Okkur er mikil ánægja af því að geta stækkað ánægðan Salesforce viðskiptavinahóp Advania,“ er haft eftir Ægi Má Þórissyni, forstjóra Advania, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka