Dr. Sesselja Ómarsdóttir hefur tekið við stöðu forstjóra hjá Genís hf. Hún er prófessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands og starfaði áður sem framkvæmdastjóri lyfjaþróunardeildar hjá Alvotech.
Hún tekur við starfinu af Sigurgeiri Guðlaugssyni, sem hefur stýrt fyrirtækinu frá ársbyrjun 2022.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Genís.
Genís er íslenskt líftæknifyrirtæki sem hefur um tveggja áratuga skeið unnið að rannsóknum og þróun á lífvirkum kítínfásykrum til notkunar í fæðubótarefnum, lyfjum og við beinígræðslu.
„Undir stjórn Sesselju mun Genís hf. halda áfram sinni vegferð á sviði líftækni og vöruþróunar. Í júní 2024 tryggði fyrirtækið sér 1,1 milljarð króna í nýtt hlutafé, fjármögnun sem endurspeglar traust núverandi og nýrra hluthafa á framtíðarsýn þess,“ segir í tilkynningunni.
Fjármagnið á að renna til áframhaldandi þróunar á beinígræðslu og nýjum lausnum fyrir bólgusjúkdóma.
Genís segir að vísindaleg þekking og reynsla Sesselju úr lyfjaiðnaðinum muni koma að góðum notum við áframhaldandi vöxt og þróun fyrirtækisins á sviði líftækni, skráningu og markaðssetningu lækningatækja og lyfjaefna.
Sem prófessor hefur hún sinnt rannsóknum og kennslu á sviði náttúruefna um árabil. Hún lauk doktorsprófi í lyfjafræði árið 2006 og EMBA gráðu frá TRIUM (LSE, NYU, HEC) árið 2024.
Eins og fyrr segir þá starfaði hún sem framkvæmdastjóri lyfjaþróunardeildar hjá Alvotech. Hjá því fyrirtæki leiddi hún þróun líftæknilyfjahliðstæða frá frumþróun til skráningar og hafði umsjón með margvíslegum stjórnunarverkefnum.