Tólf mánaða verðbólga mælist nú 4,8% og stendur í stað frá síðustu mælingu.
Tólf mánaða verðbólga mældist síðast 4,8% og var það í fyrsta sinn í þrjú ár sem hún var undir 5% en það var í nóvember 2021. Þá mældist hún líka 4,8%.
Hagfræðideild Landsbankans spáði örlítilli lækkun verðbólgunnar eða úr 4,8% í 4,7% en hagfræðideild Íslandsbanka spáði óbreyttri verðbólgu.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis síðastliðna tólf mánuði mælist 2,8%.
„Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2024, er 637,2 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,39% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 511,7 stig og hækkar um 0,37% frá nóvember 2024,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar.
Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,5% (áhrif á vísitöluna 0,09%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 8,0% (0,14%).