Origo lausnir ehf., sá hluti Origo sem hefur sérhæft sig í sölu og þjónustu á notendabúnaði og tæknilausnum, hefur fengið nafnið Ofar.
Í tilkynningu frá Ofar segir að með tilkomu eignarhaldsfélagsins Skyggnis í lok 2024 þá hafi Origo gengið í gegnum endurskipulagningu og tilkoma Ofar sé liður í henni. „Hlutverk Ofar er að styðja við fyrirtæki, stofnanir og endursöluaðila með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval og þjónustu í hljóð- og myndlausnum, prentlausnum, ásamt tæknilausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði og fleira.“
Engar breytingar verða gerðar á nafni eða þeirri starfsemi Origo sem snýr að þróun á hugbúnaði, rekstrarþjónustu og innviðum samkvæmt tilkynningunni.
Ofar byggir á traustum grunni eins og segir í tilkynningunni, sem upphaflega megi rekja til Skrifstofuvéla og IBM á Íslandi fram til ársins 1992 þegar Nýherji varð til. Árið 2018 sameinaðist Nýherji félögunum Applicon og TM Software undir nafni Origo.
„Áratuga þekking og reynsla okkar starfsfólks er okkar verðmætasta eign. Með nýju vörumerki og nýjum áherslum skapast tækifæri til að skerpa enn betur á hlutverki félagsins, veita því aukna sérstöðu á markaðnum og tryggja viðskiptavinum betri þjónustu á notendabúnaði og tæknilausnum“, segir Jón Mikael Jónasson, framkvæmdastjóri Ofar í tilkynningunni.
Þá segir að nafnið Ofar vísi til mikillar framþróunar í tækniheiminum og markmiða fyrirtækisins í þjónustu, vöruframboði og þekkingu. „Markið er alltaf sett Ofar. Framtíðarsýn okkar er að vera fyrsta val viðskiptavina þegar kemur að tölvubúnaði, vera leiðandi í að kynna tækninýjungar og veita fyrsta flokks þjónustu,“ segir að lokum í tilkynningunni.