Íris Rún Karlsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri samstarfs (e. Head of Partnerships) hjá Klöppum. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Hugbúnaðarlausnir Klappa gera fyrirtækjum kleift að uppfylla kröfur um upplýsingagjöf í sjálfbærni með einföldum og skilvirkum hætti. Klappir dreifa hugbúnaðinum í gegnum net samstarfsaðila sem nær til um 25 landa.
Íris gegndi áður stöðu yfirmanns þjónustu og sjálfbærni hjá Klöppum frá árinu 2023. Áður starfaði hún í áratug hjá Chr. Hansen í Danmörku í ýmsum störfum en allar á sviði sjálfbærni. Hún var m.a yfirmaður umhverfismála og var yfir teymi sérfræðinga hjá fyrirtækinu sem er leiðandi á heimsvísu í lífvísindum og náttúrulegum hráefnum.
Í nýja starfi sínu hjá Klöppum mun Íris bera ábyrgð á að afla nýrra viðskiptatækifæra sem og að efla samstarf við samstarfsaðila fyrirtækisins.
„Þetta er nýtt og spennandi starf hjá Klöppum, og ég er full tilhlökkunar að takast á við það. Það er mjög hvetjandi að fá tækifæri til að vinna enn frekar með hugbúnað Klappa og leita nýrra sóknartækifæra. Í starfinu mun ég leggja sérstaka áherslu á að styrkja samskipti við samstarfsaðila og endursöluaðila á erlendum mörkuðum. Fyrirtækið hefur vaxið hratt og við undirbúum okkur fyrir áframhaldandi öra þróun á næstu árum. Það eru því sannarlega spennandi tímar framundan,“ segir Íris.
„Íris býr yfir traustum stjórnendagrunni og hefur mikla reynslu af því að byggja upp árangursrík teymi í sjálfbærni, þjónustu og ráðgjöf. Við erum mjög ánægð með að hún hafi tekið að sér að leiða uppbyggingu á alþjóðlegum dreifileiðum Klappa í gegnum samstarfsnet okkar sem nær um allan heim. Reynsla hennar og þekking gerir hana að frábærum leiðtoga sem mun styrkja fyrirtækið og efla viðskiptatækifæri okkar með aukinni samvinnu við samstarfsaðila,“ segir Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa.