Íslenska nýsköpunarfyrirtækið DTE hefur ráðið Jakob Ásmundsson sem nýjan framkvæmdarstjóra.
Jakob býr að víðtækri reynslu úr atvinnulífinu og í umbreytingarstjórnun, mun móta og leiða stefnu DTE á næstu skrefum í vegferð fyrirtækisins að því markmiði að verða leiðandi samstarfsaðili álframleiðanda. Hann starfaði áður sem fjármálastjóri Travelshift.
DTE stefnir á nýja markaði og mun Jakob vera í lykilhlutverki í að leiða fyrirtækið í gegnum komandi vaxtarfasa. Jakob mun byggja á víðtækri reynslu sinni þegar kemur að fyrirtækjarekstri til að tryggja að DTE nái markmiðum um vöxt og markaðshlutdeild. Þekking hans á vöruþróun og tækni mun einnig vera mikilvægur þáttur í að tryggja að næsta kynslóð lausna DTE aðstoði álframleiðendur við að ná háleitum markmiðum sínum um kolefnishlutleysi og aukna endurvinnslu áls.
Jakob mun stýra daglegum rekstri og áframhaldandi vexti fyrirtækisins, en fráfarandi framkvæmdarstjóri og meðstofnandi DTE, Karl Ágúst Matthíasson, mun einbeita sér að viðskiptaþróun, þar sem hann mun sinna verkefnum tengdum fjármögnun, stefnumótandi samstarfi og stærri söluverkefnum. Þrátt fyrir að Karl stigi úr hlutverki framkvæmdarstjóra, verður þekking hans og tenglsanet innan iðnaðarins enn í lykilhlutverki í vaxtarfasa fyrirtækisins.
„Ráðning Jakobs gefur markmiðum DTE byr undir báða vængi og er stórt skref í vaxtarfasa DTE” segir Karl, “Það hefur verið mjög gefandi að vera hluti af leiðtogateymi DTE frá stofnun fyrirtækisins, og ég er stoltur af því að hafa komið fyrirtækinu á þennan stað, en ég er einnig mjög spenntur fyrir næstu skrefum og ég er handviss um að reynsla og þekking Jakobs þegar kemur að vexti og stjórnun fyrirtækja eigi eftir að reynast mjög mikilvæg í næstum skrefum á vegferð DTE og ég hlakka til samstarfsins með honum”
„Ég er spenntur að byrja nýtt ár með DTE,” segir Jakob, „Fyrirtækið hefur náð ótrúlegum árangri í iðnaðinum hingað til og það er mikill heiður að fá að koma inn á þessum vaxtartíma í fyrirtækið. Með því að fínstilla vöruvalið og sækja á nýja markaði, munum við tryggja að lausnir DTE verði ómissandi fyrir álframleiðendur, sem eru að takast á við mjög krefjandi verkefni. Ég hlakka til að vinna með því frábæra teymi sem er hér nú þegar og byggja á þeim sterku undirstöðum sem til staðar eru.”
Síðan DTE var stofnað árið 2013 hefur það verið í farabroddi í stafrænni umbreytingu í áliðnaðinum með það að markmiði að gera hana bæði umhverfisvænni og öruggari, ásamt því að auka hagkvæmni framleiðslunnar. Tækni DTE er byggð á skynjurum sem greina efnasamsetningu fljótandi málma með laser-litrófsgreiningu. Með því að bæta ferla, minnka sóun og auka yfirsýn yfir framleiðsluferli frá upphafi til enda geta álframleiðendur nýtt auðlindirnar sem til þarf við framleiðsluna mun betur og lágmarkað framleiðslu á vörum sem standast ekki framleiðslukröfur framleiðsluna öruggari, hagkvæmari og umhverfisvænni.