Hildur ráðin mannauðsstjóri Distica

Hildur Guðjónsdóttir.
Hildur Guðjónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Hildur Guðjónsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Distica og tekur sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

Hildur er 39 ára og hefur starfað í mannauðsmálum undanfarinn áratug. Um er að ræða nýja stöðu innan félagsins sem er liður í því að auka vægi mannauðsmála og styrkja stefnumiðað mannauðsstarf félagsins. Distica leggur áherslu á velgengni og vellíðan starfsfólks, sem er grundvöllur áframhaldandi vaxtar og árangurs félagsins. Síðastliðin tvö ár hefur Hildur starfað náið með Distica í gegnum móðurfélag félagsins, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. 

Hildur hefur lokið meistaragráðu í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum, auk diplómu í mannauðsstjórnun og leiðtogafærni. Þá hefur hún bætt við sig menntun í stjórnendamarkþjálfun.

Distica er leiðandi á markaði og í vörustjórnun fyrir fyrirtæki á heilbrigðismarkaði og dreifir m.a. lyfjum, rannsóknartækjum, rekstrarvörum og neytendavörum til sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila, tannlækna, dýralækna og verslana. Árstekjur Distica 2023 voru um 33 milljarðar og stöðugildi um 120, segir enn fremur í tillkynningunni. 



mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK