Íslenskir fossar í Kaupmannahöfn

Íslenskir fossar hafa prýtt byggingar í miðborg Kaupmannahafnar síðustu daga.
Íslenskir fossar hafa prýtt byggingar í miðborg Kaupmannahafnar síðustu daga. Ljósmynd/Aðsend

Íslenskir fossar hafa prýtt byggingar í miðborg Kaupmannahafnar síðustu daga og hafa vakið mikla undrun og athygli vegfarenda.

Um er að ræða gjörning á vegum fatamerkisins 66°Norður en myndbönd af fossunum hafa jafnframt vakið athygli á samfélagsmiðlum þeirra, þar sem margir velta því fyrir sér hvort um gervigreind sé að ræða, svo er þó ekki.

Nálgun 66°Norður snýr að tímalausri hönnun og gæðum.
Nálgun 66°Norður snýr að tímalausri hönnun og gæðum. Ljósmynd/Aðsend

Gæði umfram magn

Fossarnir í Kaupmannahöfn eru hluti af sýningu 66°Norður í Kaupmannahöfn þann 28. janúar næstkomandi. Sýningin ber heitið „99 ár – 867.815.464 klukkustundir“ en nafnið er táknrænt fyrir langa sögu fyrirtækisins.

Nálgun 66°Norður snýr að tímalausri hönnun og gæðum en fyrirtækið vill leggja áherslu á mikilvægi þess að neytendur velji gæði umfram magn, og séu meðvitaðir um hvað þeir eru að kaupa.

Sýningin er opin öllum 28. janúar frá kl. 11-17 á Rådhuspladsen 37, 1785 Kaupmannahöfn en hluti sýningarinnar verður einnig sýndur á Íslandi síðar á árinu. Hægt er að kynna sé sýninguna betur hér.

View this post on Instagram

A post shared by 66°North (@66north)

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK