Íris Mjöll Gylfadóttir framkvæmdastjóri vörumerkjastofunnar Brandr segir í samtali við Morgunblaðið að spennan fyrir afhendingu viðurkenninga fyrir bestu íslensku vörumerkin 2024 í Hörpu þann 5. febrúar nk. sé orðin áþreifanleg. Íris bendir sérstaklega á nýja flokkinn, vörumerki vinnustaðar, þar sem Advania, Arion banki, Elko, Nova og Orkan eru tilnefnd. „Við héldum leiðtogafund í Landsbankanum í september sl. sem bar yfirskriftina vörumerki, mannauður og menning. Þar mættu 200 manns og komust færri að en vildu. Það sýnir best hvað vörumerki vinnustaðar eru farin að skipta miklu máli. Þarna vorum við að leggja áherslu á þessa þrjá þætti og sýna hvað vörumerkið hefur mikil áhrif á mannauðinn. Þeir eru í raun ein órjúfanleg heild,“ segir Íris.
Hún hefur orðið vör við að fyrirtæki vilji í auknum mæli styrkja vörumerki sitt til að ná betra sambandi bæði við núverandi starfsfólk en ekki síður við tilvonandi starfsmenn. „Þess vegna fannst okkur tímabært að veita þessa viðurkenningu í fyrsta skipti í ár.“
Íris segir að vinnustaðir horfi í þessu samhengi í auknum mæli á sitt virðistilboð, þ.e. hvað þeir hafi upp á að bjóða til að halda fólki og laða að nýtt starfsfólk.
Íris vitnar í nýlega rannsókn ráðgjafarfyrirtækisins PriceWaterHouseCoopers þar sem 53 þúsund manns frá meira 40 löndum svöruðu spurningum um hvað skipti það mestu máli á vinnustað. „Í rannsókninni kom í ljós að það var þrennt sem skipti starfsfólk mestu máli (fyrir utan laun); að upplifa að það sé í gefandi starfi, að fá að vera maður sjálfur og finnast maður tilheyra vinnustaðnum. Vinnustaðir þurfa að taka þetta til sín þegar þeir eru að skoða virði sitt sem vinnustaðar.“
Þá segir Íris að eitt það verðmætasta sem vinnustaðir eigi séu talsmenn vörumerkisins (e. Brand ambassador). „Þú þarft að finna út hverjir þessir aðilar eru innan fyrirtækisins og hvað býr þá til, því þú vilt fjölga þeim.“
Íris segir að rannsóknir Brandr segi sömu sögu. „Það er ótrúlegt hvað það er mikil fylgni milli sterks vörumerkis og ánægju starfsfólks.“
Síðustu tvö ár hefur verið útnefnt svokallað Persónubrandr, þar sem einstaklingur er verðlaunaður fyrir sína eigin vörumerkjauppbyggingu. Upphaflega átti að hvíla þennan verðlaunaflokk í ár en Íris segir að Brandr hafi endurskoðað þá ákvörðun. „Við ákváðum að veita Persónubrandr aftur en við viljum ekki festa okkur í að það sé tónlistarmaður eins og í síðustu tvö skipti þegar Prettyboitjokkó og Herra Hnetusmjör voru valdir. Aðilinn getur komið úr öllum geirum, hvort sem er tónlist, menningu, pólitík, viðskiptum eða öðru. Það eru komnar margar góðar hugmyndir að einstaklingum sem hafa búið til vörumerki í kringum sig sem persónu. Þetta er ákaflega spennandi.“
Í valnefnd verðlaunanna eru fimmtíu og fjórir sérfræðingar úr atvinnulífinu og fræðasamfélaginu og flokkarnir eru þrír auk vörumerkis vinnustaðar og Persónurbrandr: Fyrirtækjamarkaður, einstaklingsmarkaður með starfsfólk 50 eða fleira og einstaklingsmarkaður með starfsfólk 49 eða færri.
Á viðburðinum í Hörpu verða fyrirlesarar frá alþjóðlegu vörumerkjastofunni Saffron og Brandpie sem kemur frá Bretlandi m.a. „Við höfum unnið mikið með þeim báðum. Til dæmis unnum við með Saffron að því að breyta Bónusgrísnum sælla minninga. Það vakti mikla athygli á sínum tíma,“ segir Íris að lokum og brosir.
Greinin birtist í Morgunblaðinu í morgun.