Kínverski drekinn sýnir klærnar

Drekinn í hátíðarhöldum í tilefni nýja ársins í Kína, sem …
Drekinn í hátíðarhöldum í tilefni nýja ársins í Kína, sem er í dag 29. janúar. AFP

Ringulreið ríkir meðal fjárfesta í Bandaríkjunum eftir að kínverska gervigreindarfyrirtækið DeepSeek stökk fram á sjónarsviðið með búnað sem er talinn betri en allur sá sem bandarísku fyrirtækin hafa verið að þróa. Fyrirtæki eins og t.d. Microsoft, X, Google og Nvidia. Félögin lækkuðu hressilega í Bandaríkjunum við fréttirnar og eftirskjálftar eru víðar. Fjárfestar óttast að Kína geti með þessu gjörbreytt landslagi gervigreindar þar sem bandarísk fyrirtæki hafa verið leiðandi. Það myndi setja fjárfestingar upp á milljarða dala í uppnám.

Athygli vekur að DeepSeek er ársgamalt fyrirtæki sem reyndar segist hafa þróað búnað sinn á einungis tveimur mánuðum en birtist nú með yfirburða tæknibúnað. Fyrirtækið hefur sagt að það hafi einungis fjárfest fyrir tæpar 6 milljónir dala í þjálfun gervigreindarinnar. Það er brotabrot af því sem bandarísk fyrirtæki hafa eytt og áætla að eyða í slíka þróun. Þar eru tölurnar í milljörðum dala.

Margir miðlar hafa tekið upp fullyrðingar Marc Andreessen, eins stofnenda Netscape Navigator sem opnaði augu manna fyrir netinu á sínum tíma, að DeepSeek og hugbúnaður þess sé Spútnik okkar tíma. Vísar þar til 1957 þegar Sovétmenn slógu Bandaríkin köld þegar þeir sendu gervitungl fyrstir þjóða út í geim. Spútnik-líking Marc er eitthvað sem Bandaríkjamenn skilja og átta sig á hvað er í húfi.

Þetta vekur ekki síður athygli þar sem Bandaríkin hafa lagt sig fram við að hefta sölu á búnaði til Kína til að sérstaklega hægja á þeim við þróun gervigreindar.

ViðskiptaMogginn leitaði viðbragða hjá Hafsteini Haukssyni, aðalhagfræðingi Kviku banka, sem benti á: „Síðasti sólarhringur sýnir fram á tvennt. Í fyrsta lagi hvað bandaríski hlutabréfamarkaðurinn var orðinn brothættur. Verðkennitölur voru orðnar mjög háar, sérstaklega í tæknigeiranum, svo markaðurinn var sérstaklega viðkvæmur fyrir hvers konar neikvæðum fréttum, eins og sést á miklum verðlækkunum tæknifyrirtækja. Í öðru lagi að forskot Bandaríkjanna á sviði gervigreindar er ekki jafnmikið og áður var talið.

Hafsteinn bætir við: „Það er stundum sagt að í gullæði sé best að vera sá sem selur haka og skóflur, og það eru eiginlega skófluframleiðendurnir sem hafa orðið verst úti. Verðlagning þessara félaga hafði miðast við að þau nytu góðs af viðvarandi tugmilljarða dollara fjárfestingu í búnaði, sem nú er hætt við að gæti orðið verulega minni. Lækkun markaðsvirðis Nvidia, sem framleiðir skjákort sem notuð eru til að þjálfa gervigreindarlíkön, var t.d. mesta lækkun á stökum degi í sögu bandaríska hlutabréfamarkaðarins.“

Líklega er ekki öll sagan sögð varðandi uppruna og búnað DeepSeek en markaðurinn þarf að átta sig á nýjum veruleika og tæknifyrirtækin bandarísku keppast nú við að leita viðbragða frá yfirvöldum í Bandaríkjunum til að mögulega hefta DeepSeek til að vernda sínar fjárfestingar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK