Tæknifyrirtækið OK hefur verið tilnefnt til tvennra verðlauna á Hewlett Packard Enterprise Partner Awards 2024. Um er ræða viðurkenningar fyrir árangur, nýsköpun og frammistöðu í samstarfi við Hewlett Packard Enterprise.
Segir í tilkynningu OK að félagið sé tilnefnt sem HPE Networks Fighter of the Year 2024, sem sé viðurkenning fyrir frábært samstarf við HPE á sviði netkerfa.
Viðurkenningin nái til uppbygginga nýrra netkerfislausna. Þá er Ok ennfremur tilnefnt sem HPE Game-Changer of the year 2024, fyrir nýsköpun og þau áhrif sem fyrirtækið hafi á sínu sviði.
„Við erum gríðarlega stolt af þessum tilnefningum, sem er staðfesting á því að OK er leiðandi í þjónustu og ráðgjöf á miðlægum lausnum. Þessar tilnefningar eru ekki bara viðurkenning á okkar verkefnum heldur á því frábæra teymi hjá OK sem veitir viðskiptavinum framúrskarandi lausnir og þjónustu,“ segir Björgvin Arnar Björgvinsson forstöðumaður innviðalausna hjá OK í tilkynningunni.