Kjarasamningarnir mesta óvissan

Spá Íslandsbanki gerir ráð fyrir að verðbólga verði við markmið …
Spá Íslandsbanki gerir ráð fyrir að verðbólga verði við markmið bráðlega. Morgunblaðið/Eggert

Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að verðbólga verði að jafnaði 3,6% á þessu ári. Þetta kemur fram í nýrri Þjóðhagsspá frá bankanum.

Fram kemur að stöðugra verðlag erlendis, takmarkað launaskrið og stöðugt gengi krónu stuðli einna helst að þeirri hjöðnun. Á næsta ári gerir bankinn ráð fyrir 3,0% verðbólgu að jafnaði en að lengra niður komist hún ekki. Árið 2027 er gert ráð fyrir því að verðbólga mælist 3,2% að jafnaði.

„Stærsti óvissuþáttur til skemmri tíma varðar kjarasamninga fyrir þann hluta vinnumarkaðar sem enn á eftir að skrifa undir. Þar að auki má nefna almenna óvissu sem tengist stjórnarskiptum hér innanlands jafnt sem erlendis. Samkvæmt okkar spá fer verðbólga ekki niður í markmið Seðlabankans á spátímanum en fer engu að síður inn fyrir efri vikmörk verðbólgumarkmiðsins í mars næstkomandi,“ segir í Þjóðhagsspánni.

Um mitt ár gerir bankinn ráð fyrir að verðbólga verði komin mjög nálægt markmiði en til þess að spáin gangi eftir þarf gengi krónu að vera nokkuð stöðugt og launaskrið takmarkað. 

Greinin birtist í Morgunblaðinu í morgun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK