Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) taka vel í framtak nýrrar ríkisstjórnar að óska eftir hugmyndum til hagræðingar hjá hinu opinbera.
Í umsögn SFF er hinni nýju ríkisstjórn bent á að rafrænar þinglýsingar hafi tekist að mörgu leyti vel en það verkefni sé ekki fullklárað, þó að lög þess efnis væru sett árið 2020.
Frá þeim tíma hafi verið uppi áform um að tekin yrðu frekari skref að fullri rafvæðingu veðlána og minnka notkun á pappírskjölum.
Að sögn SFF voru þau áform langt komin og var frumvarp þess efnis lagt fram á vorþingi árið 2023.
Með frumvarpinu var lagður grunnur að nýjum heildarlögum um rafrænar skuldaviðkenningar sem nýtt lánaform, sem á að veita samskonar réttarfarslegt hagræði skuldabréfa og samræmist betur rafrænni lánasýslu, og leiða til einföldunar og skilvirkni í viðskiptum.
Það myndi stuðla að þjóðhagslegum sparnaði og hagræði fyrir opinbera aðila, fyrirtæki og einstaklinga.