Friðbert Friðbertsson, eigandi bílaumboðsins Heklu, hefur keypt í gegnum félagið Jökla ehf. eitt elsta varahlutafyrirtæki landsins, Stillingu hf.
Þetta staðfestir Júlíus Bjarnason, framkvæmdastjóri og einn eigenda Stillingar, í samtali við Morgunblaðið.
Stilling hefur um 45 starfsmenn og rekur verslanir með bílavörur af margvíslegum toga í Reykjavík, Akureyri, Hafnarfirði og Selfossi.
Júlíus segir aðspurður að kaupverðið fáist ekki uppgefið og kveðst reikna með að viðskiptin klárist á næstu mánuðum. „Viðskiptin verða frágengin í mars en það er beðið eftir að Samkeppniseftirlitið veiti blessun sína,“ segir hann.
Júlíus segir að nýir eigendur hafi gefið það út að rekstur Stillingar muni haldast óbreyttur. „Samkvæmt kaupandanum verður Stilling áfram rekið í núverandi horfi og er því ekki um sameiningu að ræða,“ segir hann.
Stilling var stofnað árið 1960 og hefur allar götur síðan verið í eigu fjölskyldu Júlíusar. Móðir hans, Áslaug Stefánsdóttir, er stærsti hluthafi félagsins með 43% hlut.