Samkvæmt tilkynningu þá hefur Sleggjan, systurfélag Öskju, fengið nýtt nafn og verður nú Landfari. Fyrirtækið er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi.
Landfari er dótturfélag Vekru sem einnig er eigandi Bílaumboðsins Öskju er viðurkenndur sölu og þjónustuaðili Mercedes- Benz, Kia, Honda og smart. Vekra á jafnframt bílaumboðið Unu, sem er umboðsaðili Xpeng á Íslandi, ásamt eignarhaldi á Hentar og Dekkjahöllinni. Vekra á auk þess meirihluta í bílaleigunni Lotus.
Vekra velti á árinu 2024 um 30 milljörðum og eru starfsmenn félaganna um 250 talsins.
„Það eru spennandi tímar fram undan hjá Landfara. Við erum að stórefla þjónustuna með stærra húsnæði í Klettagörðum og nýrri staðsetningu að Álfhellu 15 í Hafnarfirði, en þar verður opnað fullbúið verkstæði fyrir atvinnubíla 1. júní næstkomandi. Orkuskipti í flutningum eru að slíta barnsskónum en Mercedes- Benz Trucks er í fararbroddi í þróun rafknúinna vörubíla og undirbúum við nú komu eActros 600 en það er vörubíll með allt að 500 km drægni á einni hleðslu miða við 40 tonna þyngd“, segir Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara.