Vilja innleiða starfsgetumat

Viðskiptaráð Íslands lagði nýverið fram 60 hagræðingartillögur sem samanlagt skila 122 milljarða króna árlegri hagræðingu í rekstri ríkissjóðs. Í viðskiptahluta Dagmála er rætt við Gunnar Úlfarsson hagfræðing Viðskiptaráðs.

Ein af tillögum Viðskiptaráðs er að innleitt sé virkt endurmat á starfsgetu einstaklinga á örorku. Gunnar útskýrir að tíðni örorku sé há á Íslandi, sérstaklega meðal ungs fólks, og að virkt endurmat á starfsgetu sé lykilatriði til að snúa þessari þróun við.

Í stað þess að horfa til veikleika verði með starfsgetumati horft til styrkleika hvers og eins og stutt við einstaklinga sem vilja stíga inn á vinnumarkað.

Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á þáttinn í heild sinni hér:

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK