Gervigreindin notuð til að breyta myndum

Ísold Einarsdóttir, markaðsstjóri OK, sést hér í ýmsum gervum á …
Ísold Einarsdóttir, markaðsstjóri OK, sést hér í ýmsum gervum á myndum sem hefur verið breytt með gervigreind. Ljósmynd/Aðsend

Um næstu helgi er haldin UT-messan í Hörpu. Um er að ræða ráðstefnu og sýningu fyrir fagfólk í tæknigeiranum.

Þar munu gestir geta fengið af sér mynd og henni breytt um leið með gervigreind.

,,Við ætlum að bjóða gestum að taka mynd af sér á UT-messunni þar sem hver og einn getur látið breyta sér í það sem þeim dreymir um hvort sem það er kúreki á víðáttumiklum sléttum Norður-Ameríku eða sem kappaksturshetju á Formúlubraut eða raunar hvað sem er. Við græjum draumamyndina fyrir alla með aðstoð gervigreindar," segir Ísold Einarsdóttir, markaðsstjóri OK.

Búist er við um tíu þúsund gestum á UT-messuna sem haldin verður í 15 skipti nú um helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK