Sigurður Viðarsson, framkvæmdastjóri Hili á Íslandi, var gestur í viðskiptahluta Dagmála þar sem hann ræddi um starfsemi Hili en einnig um fjármálamarkaðinn og tryggingamarkaðinn en Sigurður starfaði lengi vel sem forstjóri TM og um hríð sem aðstoðarforstjóri Kviku.
Spurður hvort hvann hafi skoðun á kaupum Landsbankans á TM segir Sigurður að hann eigi erfitt með að svara því þar sem hann hafi keyrt söluferlið í gegn fyrir Kviku.
„Þeir fengu félagið á góðu verði og ef þeir sjá tækifæri í því að samþætta þetta við bankareksturinn þá held ég að þetta geti verið farsæl kaup fyrir Landsbankann," segir Sigurður.
Spurður hvort hann telji að Landsbankinn sé söluvænni vara með TM innanborðs svarar Sigurður því játandi.
„Mér sýnist þó sala Landsbankans ekki vera á teikniborðinu," segir Sigurður.
Áskrifendur Morgunblaðsins geta hort á þáttinn í heild sinni hér: