Hrekkjalómurinn Roman Atwood er geysivinsæll á Youtube enda eru hugmyndir hans óþrjótandi þegar kemur að því að fara illa með samborgara sína. Nýlega birti Monitor hrekk sem fór rækilega úrskeiðis þegar hann tilkynnti ástkonu sinni að hann hefði haldið framhjá henni.
Hér er hins vegar komið að þakkargjörðarhátíðinni, en herra Atwood hélt upp á hana síðastliðinn fimmtudag rétt eins og meirihluti Bandaríkjamanna og bauð af því tilefni nokkrum af sínum nánustu í kalkún. Þrátt fyrir að kalkúnninn sé jafnan með fyllingu var þessi tiltekni kalkúnn fylltur með einhverju ögn stærra og kraftmeira. Myndband segir meira er orð.