Nú hafa lífverðir söngvarans Justins Biebers verið ákærðir fyrir að ráðast á ljósmyndara og var Bieber í kjölfarið yfirheyrður af lögfræðingum í síðustu viku. Nú hefur verið gefið út myndband af þeim yfirheyrslum og eru þær áhugaverðar að sjá.
Myndböndin eru vægast sagt vandræðaleg þar sem Bieber og lögfræðingarnir þræta sín á milli. Lögfræðingarnir spurðu Bieber meðal annars undarlegra spurninga um samband sitt við söngkonuna Selenu Gomez sem Bieber kunni ekki að meta.
Einnig var Bieber spurður um samband sitt við söngvarann Usher sem Bieber fannst erfitt að svara. Jafnframt var hann spurður hvort hann hefði komið til Ástralíu og var Bieber ekki viss.