Munnmakahermir á markað í júlí

Brian Sloan segir farir karlmanna ekki sléttar þegar kemur að hjálpartækjum ástarlífsins. Hann telur ástæðuna fyrir því að tæki ætluð kvenfólki njóti mun meiri vinsælda á markaðnum sé einfaldlega sú að enn hafi ekki verið markaðsett gæða sjálfsfróunartól fyrir karlmenn.

Sloan er maðurinn á bakvið Autoblow 2 sem er vél sem líkir eftir munnmökum á karlmanni. Helsta kost tækisins segir Sloan vera þann að karlmennirnir þurfa ekki að nota hendurnar við notkun þess. Tækinu er einfaldlega stungið í samband, limnum er stungið inn og svo gerir vélin sitt. Flest hjálpartæki ástarlífsins sem krefjast rafmagns þiggja það frá batteríum en Sloan segir það af og frá fyrir Autoblow 2 þar sem tækið sé búið mótor sem eigi að þola mikla notkun í langan tíma. 

Sloan safnar nú fé fyrir fjöldaframleiðslu á tækinu í gegnum vefsíðuna Indiegogo og hefur hann þegar næstum tvöfaldað takmark sitt. Áætlað er að Autoblow 2 komi á markaðinn í júlí og kosti um 150 bandaríkjadali stykkið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir