Kona í Houston í Texas fæddi sexbura á dögunum en sexburafæðingar eru afar sjaldgæfar og líkurnar nánast stjarnfræðilega litlar. Greint er frá fæðingunni á Facebook-síðu spítalans.
Hin bandaríska Thelma Chiaka fæddi fjóra syni og tvær dætur á innan við tíu mínútum. Börnin voru um þúsund grömm og fóru í aðhlynningu á spítalanum eftir að þau komu í heiminn eins og New York Post greinir frá.