Linda Baldvinsdóttir segir það algert rugl að starfsferill kvenna endi við 45 ára aldur en fram kom á dögunum í skýrslu á vegum eftirlauna -og vinnumáladeildar breska ríkisins að konur ættu varla séns á vinnumarkaði eftir 45 ára.
„Í skýrslunni kom fram að fjölmiðlar eiga stóran þátt í því að búa til þetta aldurseinelti, og það þykir mér afar leitt að heyra. Ef einhverjir þurfa á fullþroskuðum viskufullum einstaklingum að halda, þá eru það einmitt fjölmiðlar á þessum síðustu og bestu/verstu tímum. Ég bara fann hvernig ég gerði uppreisn í huga mér þegar ég las þessa grein, og réttlát reiðin (að mér fannst) tók öll völd. Síðan kom hugsunin: „Ekki nema von að allt sé á heljarþröm í heiminum!“
Því að það er fyrst á þessu aldursskeiði sem bæði kynin eru komin með ákveðinn þroska. Þroska og ákveðna þekkingu á hinum ýmsu mannlegu þáttum sem gagnast vel þegar stórar og merkilegar ákvarðanir eru teknar,“ segir Linda í sínum nýjasta pistli.
„Hvatvísi sú og það netta kæruleysi sem einkenndi okkur flest fram að fertugu er á hröðu undanhaldi, og við hefur nú tekið yfirveguð ábyrgðarkennd í flestum tilfellum. Eins er fólk yfir fjörutíu og fimm, að ég tali nú ekki yfir fimmtugu, yfirleitt bestu starfskraftarnir.“