Ofurfyrirsætan Naomi Campbell er andlit nýjustu línu nærfatamerkisins La Perla. Hin 45 ára Campbell lítur einstaklega vel út í nærfötum merkisins sem koma á markað með haustinu.
Það voru ljósmyndararnir Mert Alas of Marcus Piggot sem tóku myndirnar fyrir herferð La Perla.
Þrátt fyrir háan aldur (á fyrirsætumælikvarða) er brjálað að gera hjá Campbell þessa dagana. Hún gekk til að mynda tískupallinn fyrir tískuhús Givenchy í seinustu viku og klæddist g-streng, háum sokkum og glitrandi jakka á sýningunni.