Elísabet Gunnarsdóttir, tískubloggari og eigandi vefsíðunnar Trendnet, og unnusti hennar, handboltakappinn Gunnar Steinn Jónsson, eiga von á barni.
Barnið er væntanlegt í heiminn í janúar. Elísabet birti sæta bumbumynd á Instagram á dögunum þar sem hún tilkynnti barnalánið.
„Mér fylgir lítill laumufarþegi hvert sem ég fer þessa dagana. Við fjölskyldan ætlum nefnilega að stækka á nýju,“ skrifaði Elísabet.
Elísabet og Gunnar eiga eina dóttur fyrir, Ölbu Mist sem er sex ára. Elísabet greindi frá því að dóttir þeirra væri afa spennt því hana hefur lengi dreymt um að verða stóra systir.