Brúður eru númer eitt, tvö og þrjú í lífi búktalarans April Brucker en Smartland Mörtu Maríu greindi frá því á seinasta ári að Brucker hefði slitið trúlofuninni við unnusta sinn til að geta varið meiri tíma með brúðunum sem hún segir vera eins og börnin sín.
Brúðusafn Brucker er nokkuð veglegt en nýverið bættist ný brúða í safn hennar, það mun vera Donald Trump-brúða.
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Brucker spjalla við nýjustu brúðuna um forsetaframboðið.