Inga Lára Ingadóttir sem tekur þátt í átakinu, 10 árum yngri á 10 vikum, ætlar að huga sérstaklega vel að húðinni þessa dagana. Hún er búin að fjárfesta í epsom-salti og segist ekki ætla að fara í bað nema að hafa það út í. Epsom-saltið er mjög hreinsandi fyrir líkamann.
Inga Lára er ekki bara að rækta líkama og sál þessa dagana heldur leggur mikið upp úr því að hafa fallegt í kringum sig. Hún er til dæmis farin að hafa það fyrir reglu að kaupa sér afskorin blóm vikulega. Hún segir að það gleðji hana á hverjum degi.
Í bloggi sínu talar hún um sykurneysluna og segir hvað hún sé þakklát fyrir að vera laus við sykurpúkann. Hún segist finna mikinn mun eftir að hún kvaddi hann. HÉR er hægt að lesa blogg Ingu Láru.