Ég er ekki í megrun

Guðrún Björg Pálsdóttir.
Guðrún Björg Pálsdóttir. Eggert Jóhannesson

Guðrún Björg Pálsdóttir í Stjörnuþjálfun er í skýjunum með árangurinn sem hún hefur náð í lífstílsbreytingunni. Á bloggi sínu segir hún frá því að hún sé himinlifandi.

„Það er nú bara einfaldlega þannig að Stjörnuþjálfunarnámskeiðið í Hreyfingu er algjörlega fyrsta skrefið að bættum lífstíl hjá mér. Nú ætla ég að útskýra hvers vegna og af hverju. Ég er ekki í megrun og ekki á megrunarkúr sem ég hætti svo í/á þegar þessum 12 vikum er lokið. NEI, þannig er það ekki. Það er ekkert sem ég er að neita mér um núna sem ég ætla svo að fá mér eftir 12 vikur. Ég er ekki að hætta einhverju núna í þessar 12 vikur sem ég ætla mér ekki að hætta í framhaldi því það getur varla boðað gott t.d. með kílóin. Með breyttum lífstíl eins og að mæta í ræktina, sem er orðið að dásamlegri rútínu, hugsa um að borða hollt, borða reglulega eða 5 sinnum á dag, er alveg að gera sig. Ég komst ekki í ræktina alla síðustu viku og var stödd erlendis í 4 daga af vikunni. Ég var ótrúlega áhyggjufull yfir ferðinni áður en ég fór en auðvitað labbaði ég mjög mikið á hverjum degi og passaði upp á mataræðið. Ég var mikið úti að borða og lenti tvisvar í þeim aðstæðum að geta ekki valið matinn minn sjálf. Ég tók bara það óhollasta af disknum frá, fékk mér samloku með kjúkling og salat og í því var beikon sem ég tók bara frá, bað þjónana á veitingastöðunum um að skipta frönskunum út fyrir salat með matnum og DANSAÐI eitt kvöld.“

Hún segist hafa beðið spennt eftir því að komast í ræktina þegar ferðalaginu lauk.

„Ég segi það satt að ég hlakkaði svo til að komast í ræktina eftir að ég kom heim þrátt fyrir 2 tíma svefn og eftir 8 tíma vinnudag. Fyrir stuttu hefði ég nú beilað því ég var svo þreytt en, NEI ég gat ekki beðið. Ég þarf greinilega ekki að segja neitt meira um það að þetta er að verða að rútinu sem ég hef aldrei náð áður. Mér líður svo vel og ekki bætti ég grammi á mig eftir ferðina NEI ekki grammi, sennilega hefur dansinn bjargað því. Við erum rúmlega hálfnaðar og hef ég bætt getu mína, þol, úthald svo ég tali nú ekki um hversu vel mér líður. Í upphafi snérist þetta um að losna við kíló en það er allt í einu ekki aðal málið hjá mér lengur þegar ég finn hvað þetta er að gera mér gott. Ég hef tapað 5,5 kg, sem ég er mjög ánægð með, og þarf að sjálfsögðu að missa meira því ég er of þung, en ég er ekki svo upptekin af því núna. Núna er ég upptekin af því að bæta mig, komast í betra form, styrkja mig og að sjálfsögðu að komast í kjörþyngd með því að halda áfram að hreyfa mig, hafa gaman að og borða hollt.“

HÉR er hægt að lesa blogg Guðrúnar Bjargar.

Guðrún Björg Pálsdóttir.
Guðrún Björg Pálsdóttir. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál