Með 14 sm mjórra mitti

Eva Margrét Kristinsdóttir.
Eva Margrét Kristinsdóttir. Eggert Jóhannesson

Eva Margrét Kristinsdóttir hefur náð miklum árangri í Stjörnuþjálfun. Hún er búin að missa 5% af fitu, en mittið og mjaðmirnar eru 14 sm mjórri, lærin 3 sm mjórri og handleggirnir 2 sm mjórri. Auk þess er hún búin að léttast um 5,5 kíló.

„Það gefur mér mjög mikið að fara í þessar mælingar og sjá að fituprósentan lækkar og sentimetrarnir fjúka. Eins og ég hef sagt áður þá hefur alltaf og mun alltaf vera þungt í mér pundið. Þess vegna finnst mér mikilvægt að fylgjast með öðrum mælikvörðum en ekki bara tölunni á vigtinni, sem segir alls ekki allan sannleikann. Ég er orðin svo miklu sterkari eftir þessar 10 vikur og það eru engin ný fræði að vöðvar eru jú þyngri en fita. Ég hvet ykkur til að mæla ykkur mót við þjálfara og fá hann til að mæla ykkur, ekki bara stíga á vigtina. Það er svo ótrúlega margt sem getur breyst þó að vigtin standi í stað,“ segir Eva Margrét á bloggi sínu. 

„Í dag lýkur meistaramánuðinum formlega en hann er búinn að vera í gangi í 30 daga. Þessa 30 daga ákvað ég að taka út allt glútein, allan sykur og annað þess háttar. Þetta var ekki það mikil breyting hjá mér þar sem ég var eiginlega búin að sneiða hjá þessu öllu síðan Stjörnuþjálfunin hófst. Það kom mér á óvart hversu einfalt það var að sneiða hjá öllu brauði, hrísgrjónum og þess háttar. Meistaramánuðurinn gekk bara nokkuð vel hjá mér þegar á heildina er litið, ég er farin að taka hörfræolíu alla morgna og nota tannþráð öll kvöld sem er stórsigur. Ég hlakka samt ótrúlega mikið til að fá mér hafragraut í fyrramálið en ég er búin að sakna hans frekar mikið þessa 30 daga. Í staðinn fyrir hafragrautinn fékk ég mér graut með chiafræjum, sem er reyndar líka mjög góður. En það er bara eitthvað svo ótrúlega notalegt við að fá sér heitan og góðan hafragraut á morgnana.“

„Ég er frekar leið yfir því að ferðalaginu hjá okkur fimm fer að ljúka bráðum, þetta er búið að vera svo ótrúlega skemmtilegt ævintýri. Við hvetjum hvor aðra áfram og allar eru svo jákvæðar og skemmtilegar. Anna Eiríks er yndislegur þjálfari sem ég myndi vilja æfa hjá á hverjum degi alla mína ævi. Marta hvetur okkur áfram með fullt af fróðleik og er alltaf uppfull af sinni smitandi orku sem virðist aldrei tæmast. Ég mun sakna þess að setjast niður á Krúsku alla fimmtudaga eftir æfingu og spjalla um allt og ekkert. En eins og við höfum svo oft sagt “þetta er bara byrjunin,“ segir hún á bloggi sínu.

Eva Margrét Kristinsdóttir.
Eva Margrét Kristinsdóttir. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál