Stjörnuþjálfun útbýr sykurlausan múslíbar

Þegar hungrið segir til sín er gott að eiga lekkert nesti í töskunni sinni sem hægt er að grípa í. Stelpurnar lærðu að útbúa súpergott snarl hjá Valentínu Björnsdóttur á Krúsku. 

800 g apríkósur

200 g döðlur

1/2 lítri appelsínusafi

1/2 lítri vatn

Allt soðið saman í 25 mínútur.

Bætið 3 matskeiðum af kanil út í og maukið í matvinnsluvél.

1 msk. chia-fræ (sett í 1/2 dl af vatni og látin liggja í bleyti í 5 klukkutíma.)

500 g haframjöl

100 g möndlur

200 g sólblómafræ

1 poki Trail mix blanda (kakónibs, gojaber, kasjúhnetur, blæjuber og fleira)

50 g ristaðar kókósflögur

50 g graskersfræ

Öllu hrært saman og sett í stórt mót. Þjappað vel þannig að lagið verði sirka 2 sm. Bakað í 10-15 mínútur við 180 gráður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál