Það hafa örugglega einhverjir bætt nokkrum kílóum á sig yfir hátíðarnar. Þýskur læknir segist í samtali við Daily Mail vita hver einfaldasta leiðin til að losna við aukakílóin sé og mælir hann með nýrri megrunarpillu.
Megrunarpillan Nuratrim getur brennt allt að 380 hitaeiningum á dag eða 15 sinnum meira en venjulega.
Pillan hefur algerlega slegið í gegn en nú þegar er búið að selja meira en 50.000 skammta af henni.
Megrunarpillan er ekki bara vinsæl hjá venjulegu konunum því stjörnur á borð við Mariuh Carey, Kim Kardashian og Jennifer Aniston hafa allar notað megrunarpilluna.
Þýski læknirinn Alfred Hasslebacher segir að megrunarpillan sé góð fyrir þá sem vilja missa nokkur kíló og hafa meiri stjórn á matarlystinni. Hann segir að megrunarpillan auki orku og brenni aukafitu.
Nuratrim er tekin inn daglega með morgunmatnum. Hún brennir álíka mörgum hitaeiningum eins og manneskja myndi hlaupa í 40 mínútur.
Það þýðir þó ekki að taka bara töfluna því fólk þarf að borða hollan mat og hreyfa sig mikið svo að hún virki sem best.