Alvöru súkkulaðisjeik í morgunmat

Súkkulaðisjeik úr möndlum.
Súkkulaðisjeik úr möndlum. mbl.is/Marta María

Til hvers að borða hafragraut í morgunmat þegar þú getur borðað súkkulaðisjeik með góðri samvisku og fengið auk þess fullt af próteinum og góðri næringu. Þegar ég var á Santa Monica í Kaliforníu smakkaði ég besta „hráa“ súkkulaðisjeik í alheiminum á Planet Raw. Síðan þá hef ég gert margar tilraunir og er þessi sú besta.

1/2 bolli möndlur, best er að láta þær liggja í bleyti í 4 klukkutíma

1 bolli vatn

1 tsk lífrænt vanilluduft

1 bolli frosin jarðarber

1 msk hrátt kakó

1 msk hampfræ

4 döðlur

1 tsk kanill

Allt sett í öflugan blandara og þeytt saman í nokkrar mínútur.

Dásamlegur súkkulaðisjeik.
Dásamlegur súkkulaðisjeik. mbl.is/Marta María
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda