Hætt í ruslfæðinu

Jessica Simp­son er hætt að borða rusl­fæði og er ný talskona Weig­ht Watchers; sam­taka sem sér­hæfa sig í megr­un­ar­ráðgjöf. Söng­kon­an ákvað að breyta um lífs­stíl og taka upp holl­ari lífs­hætti eft­ir að hún eignaðist frumb­urðinn, dótt­ur­ina Maxwell Drew, í byrj­un maí. 

Barns­faðir Simp­son er fyrr­ver­andi NFL-leikmaður­inn Eric John­son en þau hafa verið par frá ár­inu 2010. „Jessica er með Max á brjósti og hún vill tryggja að hún fái sem besta nær­ingu,“ seg­ir heim­ildamaður tíma­rits­ins Us Weekly.

„Hún er því hætt að borða óholl­an mat, fyrst og fremst barns­ins vegna. Jafn­framt vill hún hlúa að eig­in heilsu og koma sér aft­ur í gott lík­am­legt form eft­ir barns­b­urðinn,“ seg­ir heim­ildamaður.

Simp­son til­kynnti á miðviku­dag að hún væri geng­in til liðs við Weig­ht Watchers og yrði talskona þeirra í framtíðinni.

„Það frá­bæra við sam­tök­in er að þau kenna manni nýja siði varðandi heilsu og mataræði og ein­blína á lang­tíma­mark­mið. Og það er í góðu lagi að svindla stund­um,“ skrifaði söng­stjarn­an á vefsíðu sína.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda