Jessica Simpson er svekkt yfir því hversu hægt henni gengur að ná af sér aukakílóunum eftir barnsburðinn, en hún eignaðist frumburðinn í maí. Söngkonan er ný talskona Weight Watchers og setti sér nýlega það markmið að léttast um 27 kíló á fimm mánuðum. En Simpson er oft ósofin og þreytt og kemst alltof sjaldan í ræktina.
Simpson og eiginmaðurinn, Eric Johnson, eignuðustu sitt fyrsta barn, dótturina Maxwell, í maí. Söngkonan bætti eðlilega á sig aukakílóum á meðgöngunni en er mjög örvæntingarfull yfir því hversu erfitt henni reynist að losna við þau.
„Jessica er mjög viðkvæm þessa dagana og grátgjörn,“ segir vinur söngkonunnar í samtali við tímaritið In Touch. „Það togast á í henni að sinna Maxi og drífa sig í ræktina.
Hún veit að hún þarf að leggja sig fram til að léttast en finnst erfitt að fara frá barninu og vill helst ekki skilja við það. Hún og Eric vaka oft heilu næturnar út af Maxi. Þetta reynist henni miklu erfiðara en hún hélt.“