Líkamsræktardrottningin Denise Austin kennir fólki magnaða æfingalotu sem brennir hitaeiningum eins og enginn sé morgundagurinn.
Það góða við þetta myndband er að það er ekki hægt annað en að brosa hringinn um leið og horft er á það. Gleðin og stuðið drýpur af hinni ofurhressu Austin sem kemur öllum í stuð.
En hvernig er best að bera sig að? Klæddu þig upp í baðfötin (sem þú ert eiginlega hætt að passa í) og gerðu þessa æfingalotu í stofunni heima hjá þér. Gættu þess vel að skælbrosa á meðan þú fylgir leiðbeiningum frú Austin.