„Ef þér finnst tilraunir þínar til að minnka mittismálið ekki vera að virka sem skyldi þrátt fyrir töluverðar breytingar á mataræðinu og svita og púl í ræktinni er e.t.v. kominn tími til að finna út hvað veldur. Hér eru sex atriði sem vert er að gefa gaum að,“ segir Ágústa Johnson í nýjasta pistli sínum.
Ofmetnar brennsluhitaeiningar
Kannastu við það að finnast þú eiga fullkomlega skilið að gæða þér á uppáhaldsnamminu þínu eftir að hafa hressilega tekið á því á æfingu? Það gæti einmitt verið ástæðan fyrir því að þú sérð ekki árangur af öllum krefjandi æfingunum þínum. Sem dæmi eru u.þ.b. 700 he í stóru Snickers og dós af kók. Algengt er að meðalmanneskja eyði 300-400 he. á klukkustundar æfingu. Mögulega ofáætlar þú þær hitaeiningar sem þú „átt inni“ eftir æfingar.
2. Drykkir hafa sitt að segja
Hefurðu minnkað sykurneyslu og matarskammtana en ekkert þokast vigtin niður á við? Gæti verið að þú hafir gleymt að reikna með öllu sem þú innbyrðir í fljótandi formi? Ávaxtasafar, mjólk, gosdrykkir, boost-drykkir, vín, bjór, sumir kaffidrykkir o.fl. innihalda fjölda hitaeininga. Nokkur glös af hinum ýmsu drykkjum geta orðið að þúsundum kaloría ef ekki er að gáð. Gott er að miða við að drekka 80% vatn og 20% aðra drykki.
3. Of stórir skammtar
E.t.v. hefur þú tekið þig verulega á varðandi sykurát og hætt að borða margar fæðutegundir sem þú telur að eigi sök á því að aukakílóin haggast ekki. En hefurðu kannski gleymt að spá í stærð skammtanna? Þó að maturinn sem þú borðar sé hollur getur verið að þú sért að borða of mikið magn og því gangi illa að losna við aukakílóin. Stærð matarskammta er lykilþáttur í þyngdarstjórn.
4. Borðar of lítið
Allir vita að mittismálið eykst ef maður borðar of mikið en ekki allir eru meðvitaðir um að ef maður borðar of lítið hægir líkaminn á brennslunni og harðneitar að gefa eftir nokkuð af aukakílóunum. Líkaminn er með náttúrulegt varnarkerfi gagnvart svelti og reynir eftir fremsta megni að halda í hitaeiningarnar ef hann fær skyndilega mun færri en venjulega.
5. Jó jó-takturinn
Ef þú ert í hópi þeirra sem sveiflast á milli þess að svelta sig og að troða sig út af mat ferðu afar illa með efnaskiptakerfi líkamans og ýtir hreinlega undir fitusöfnun. Þegar þú borðar of lítið hægist á brennslunni sem veldur því að þegar þú svo gefst upp á sveltinu og byrjar að borða stærri skammta af mat muntu fitna hratt á ný. Slíkar endurteknar sveiflur enda bara á einn veg, þér í óhag.
6. Einhæfar æfingar
Ef þú gerir alltaf sömu æfingarnar, í sömu röð og í jafnlangan tíma í senn muntu fljótt staðna. Látum vera hve leiðinlegt það er að stunda einhæfa þjálfun sem eykur til muna líkur á að þú gefist upp og hættir, en það sem verra er er hve slæm áhrif það hefur á árangurinn. Um leið og líkaminn hefur lært nýjar æfingar og verður smám saman hæfari til að stunda þær reynast þær auðveldari og þá fer að sama skapi minni orka í iðkun þeirra.
HÉR er hægt að lesa pistla Ágústu Johnson.