Bára Hilmarsdóttir, miðill og líkamsræktarkennari, stendur fyrir splunkunýju námskeiði í Sporthúsinu sem gengur út á að komast í form með réttu hugarfari.
„Tímarnir eru kröftugir þar sem æfingarnar eru einstaklingsmiðaðar og mjög fjölbreytilegar. Hver og einn vinnur eftir sinni getu og að sínu markmiði, jafnt líkamlega og andlega. Lögð verður áhersla á góða teygjur og hugleiðslu eftir hvern tíma. Þar munu þátttakendur læra hvernig hugurinn getur haft áhrif á mótun líkamans og hvernig hægt er að beina huganum að því að hafa gaman af líkamsrækt, heilsu og heilbrigðu líferni,“ segir Bára sem mun nota miðilshæfileika sína til að meta og sjá hvað hver og einn getur gert betur til að ná hámarksárangri.