Tökum er lokið á íslensku útgáfunni af Biggest Loser en 1300 landsmenn sóttu um að komast í þáttinn en aðeins tólf voru valdir til þess að keppa um titilinn. Mikil leynd hefur hvílt yfir þátttakendum og sýnir kynningarbrotið hér fyrir neðan í fyrsta sinn keppendur þáttanna í mynd. Eins og flestir vita gengur Biggest Loser út á að breyta um lífstíl með mikilli hreyfingu og hollu mataræði.
Biggest Loser Ísland hefst 22. Janúar á SkjáEinum.