Sumarhúsin gerast ekki mikið fallegri en þetta. Arkitektarnir Hofman and Brown hönnuðu húsið og tókst vel til.
Húsið, sem er í Yallingup í Ástralíu, er á einni hæð. Stofan og eldhúsið renna saman í eitt og ræður hrái stíllinn ríkjum.
Gólfin eru steypt og gluggarnir njóta sín vel. Garðurinn í kringum húsið er mjög skemmtilegur og þá sérstaklega sundlaugin. Það væri ekki ónýtt að slaka þar á milli máltíða og lestur góðra bóka.
Eða er það ekki þannig sem fólk hagar sér í sumarbústöðum?